Leita í fréttum mbl.is
Embla

Glórulaus ósvífni eða ískaldur hroki

 

Þessi yfirlýsing er með ólíkindum en um leið lýsandi fyrir framkomu starfsfólks fyrirtækisins. Það eru rúmir 14 mánuðir síðan ég lagði fram kvörtun vegna þessa bílasamnings hjá Neytendastofu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum tíma og má þar meðal annars nefna dóma héraðsdóms og Hæstaréttar. Eins og fram hefur komið í yfirlýsingum talsmanna Lýsingar á þessu tímabili telja þeir stjórnvöld og dómstóla vera, í mesta lagi, álitsgjafa í þessum málum. Þau viðbrögð eru reyndar í fullu samræmi við þau undirheima viðskipti sem fyrirtækið stundar. Það er því  í raun óskiljanlegt að stjórnendur Lýsingar skuli hafa áfrýjað ákvörðun Neytendastofu ef þeir ætluðu sér aldrei að hlíta úrskurðinum. Mig grunar að þeir treysti á tvennt í þessu máli þ.e. að stjórnvöld muni ekkert aðhafast frekar í málinu og að dómstólar muni verða þeim hliðhollir. Ekki verður annað sagt en að reynsla þeirra af hvoru tveggja sé nokkuð góð.

Einu skilaboðin sem ég vil koma til stjórnenda og lögmanna Lýsingar hf. eru - "ég mun túlka samninginn samkvæmt mínum skilningi og ákvörðun Neytendastofu þar um"


mbl.is Verðtrygging forsenda vaxtakjaranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Billi bilaði

Vonandi fara þessi mál alla leið til evrópudómstóla. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að þessi íslenska svívirða komist í gegn þar líka.

Billi bilaði, 6.1.2011 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Guðmundsson
Þorsteinn Guðmundsson

Höfundur er laganemi og ritari í stjórn Borgarhreyfingarinnar.

Bloggvinir

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband